Dagbók Drápskattar

fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Sakni Sakni



Ég sakna Atla svo fáránlega mikið :( en við náum allavega að tala saman á skype einu til tvisvar sinnum á dag :)





Skype-ið mitt er erna.ben
Síminn minn er: 001 305 458 5230 (held ég)

Ég er að hlusta á Sigurrós og það minnir mig svo mikið á Ísland. Afgreiðslumaður í símabúð sem við Hildur fórum í sagðist ekki vita mikið um Ísland nema það að Sigurrós væri þaða, auðvitað hehe.

Öllum sem voru að byrja í UM (University of Miami) var boðið í Picnic til skólastýrunnar sem heitir Shalala og er innan við 150cm á hæð.
Þetta var í raun ekki picnic heldur festival með helling af tjöldum með alls konar mat, ís og svoleiðis. Við skiptinemarninr fórum í blak, ég elska blak. Það eru að vísu ekki nýjar fréttir ;)

Picnic MYNDIR

Búin að fara í nokkur partý síðan síðast...afmælið hennar Marcie sem er frá Guatemala en er að læra í Mónakó og partý hjá spænsku strákunum.

Partý MYNDIR



Við Hildur, Fannar og Chloe frá Manchester England England fórum á South Beach í gær og ég náttúrulega skaðbrann þrátt fyrir að hafa makað á mig sólarvörn (að vísu númer átta og ég var mjög mikið í sjónum :S )

SouthBeach MYNDIR


Í dag var fyrsti skóladagurinn og ég fór í 3 tíma. Fyrstu tvö fögin eru fín, eiginlega bara mjög spennandi. Aðgerðagreining (Determenisic Models in Operation Research) og Hagverkfræði (Engineering Economy). Klára meira að segja annan áfangann fyrir lokapróf og hinn erm eð 40% lokaprófi. Maður hatar ekki svona skipulag ;)
Seinni tveir áfangarnir mínir í dag voru Gæðastjórnun (Statisic Quality Control and Quality Management) og Verkefnastjórnun(Method Analysis and Project Management), þeir eru held ég töluvert snúnari en fyrri tveir. Fyrri áfanginn er bæði Bsc og Masters áfnagi. Ég fékk heimaverkefni í seinni áfanganum í dag og átti að skila því fyrir átta í kvöld...:S og svo er próf á mánudaginn í sama fagi. Greinilega smá harka í þessu!
Ég er líka skráð í Tæknistjórnun (Technology Management) og ég hef ekki guðmund um hvernig sá áfangi er og kannski ætla ég að reyna að troða mér í Golfkúrs.

Ég gleymdi líka að tengja á myndirnar frá lokadjamminu á Íslandi. Kveðjupartý Hildar og Naked Ape partý Óla Frímanns

8 Comments:

At 10:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Golfkúrs...
styð það.
Knús
Rúlli

 
At 12:34 f.h., Blogger Erna said...

hehe við ætlum að reyna, en ég veit ekki hvort við fáum inngöngu þar sem hann er fullur :/

 
At 9:59 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ohh djúsí myndir af ströndinni :)

Hafðu það ótrúlega gott sæta:)

Kv.Anna María

 
At 4:23 f.h., Blogger Erna said...

Já ströndin er DJÚSI hehe, en ég verð bara að deila því með ykkur að það eru krókódílar á campusnum...bara innan við 100 m frá innganginum á heimavistinni minni!!
Ég er MEST hrædd við að labba í myrkrinu því þá sé ég ekki hvort þeir séu nálægt mér :S
Það eru meira að segja viðvörunarskilti hérna sem vara mann við krókódílunum...og svo eruð auðvitað eðlur og drekaflugur út um allt, en það eru bara smámunir,

 
At 9:50 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Guð ég trúi því að þú viljir ekki vera ein á vappinu í myrkrinu...hehe...

kv.anna maria

 
At 4:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

OMG KRÓKÓDÍLAR!!! shitafokkalokka!! ótrúlega gaman að skoða myndirnar ;) þú verður orðin þvílíkur sambó þegar þú kemur heim sæta mín! ;) ýkt gaman að heyra í þér snúllan mín, hafðu það rosa rosa gott! knúsknús

 
At 3:51 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Erna mín, krókódílar !!!
Eru þeir á ferð um campusinn?
Þeir eru mjög snöggir !
Er þetta í lagi?
Þá er spurning um að vera vopnuð :)
Kveðja
mamma

 
At 4:59 e.h., Blogger Atli Viðar said...

Bara 108 dagar í að þú komir heim núna. Það er ekki neeeiiiitt...


Neibb.. ekkki neitt...

 

Skrifa ummæli

<< Home