Dagbók Drápskattar

þriðjudagur, maí 01, 2007

Box


Það er farið að fara ískyggilega mikið í taugarnar á mér hvað útvarpsfólk getur ekki sagt ERR almennilega. Ber það fram svona eins og færeyingar...er fólk ekki sent til talmeinafræðings nú til dags ef það talar ekki rétt? Mér finnst lágmark að fólk sem selur rödd sína í útvarpi ætti að hugsa um svona hluti. Fallbeygja rétt og kunna að tala.

Allavegana, við Anna Hulda skelltum okkur í boxkeppni um daginn.
Aftaksturinn kom í ríkissjónvarpinu um helgina:

Box

8 Comments:

At 8:32 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Við erum svooo heitar:P

Einbeitingin mín er farin, fokin, horfin, týnd....

 
At 8:40 e.h., Blogger Erna said...

ég var að klára að horfa á greys anatomy...stundum langar mig að vera bara í læknisfræði ;)

Mig dreymdi meira að segja greys í nótt, nema hvað að Dexter var yfirlæknirinn hehehe

 
At 9:39 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

hehe tekur þig vel út þarna ;) ættir að fara að æfa..

 
At 10:05 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

úúú þetta er eru rosaleg move hjá ykkur!! :)

En ég er ánægð með þessa hjólatúra, við ættum að stofna hjólaklúbb þar sem við mætumst alltaf á miðri leið (aðeins lengri leið fyrir þig, en hvaða hvaða ;)

 
At 12:35 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

ohh veistu ég var einmitt að spá hvort að við ættum ekki að stofna hjólaklúbb, bíðum þangað til Anna Hulda hefur sett keðju á hjólið sitt og þá erum við góðar!!

Mér var meira að segja farið að detta í hug nöfn(án djóks) eins og hjólaklúbburinn Helgi...þar sem við ímynduðum okkur að hvert pedalastig væri spark í Helga you know who hahanornahláturhaha

Eða kannski hjólaklúbburinn matlab það væri svona hnitmiðað hehe

Eða kannski hjólaklúbburinn Gore í virðingu Al Gore og alls þess sem kom fram í myndinni An Inconvienient Truth. Við berjumst gegn gróðurhúsaáhrifum með því að hjóla allt! töff töff

Endilega komið með hugmyndir að hjólaklúbba nafni...erum við ekki bara búnar að stofna hjólaklúbb?
Hver er game?

 
At 10:15 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er mjög góð hugmynd Erna!! Jú hjólaklúbburinn er stofnaður! Við kusum Anna, svo þú verður að ganga í hann! :)

Þú náðir mér alveg með hjólaklúbbnum Gore! Finnst ég strax vera farin að láta gott af mér leiða við tilhugsunina:) (Ekki það að ég geti alveg ýmindað mér að hvert pedalastig sé spark í Helga svona inn á milli líka;)

Time and place?? Kannski um helgina? ;)

 
At 10:08 e.h., Blogger Erna said...

sunnudagsrúntur?
íshjólatúr?
hljómar syndsamlega vel

 
At 4:01 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ha ha ég var einmitt að spá hvort þetta hefði ekki verið Erna þarna boxandi, sá samt ekki Önnu Huldu nóg og vel, en ekkert smá flottar:)

Vá hvað maður er einmitt duglegur að læra, búin að lesa upp öll blogg internetsins... Gengur ekki.

 

Skrifa ummæli

<< Home